Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1653, 150. löggjafarþing 569. mál: stimpilgjald (gjaldstofn og helmingsafsláttur).
Lög nr. 56 16. júní 2020.
Þingskjal 1653, 150. löggjafarþing 569. mál: stimpilgjald (gjaldstofn og helmingsafsláttur).
Lög nr. 56 16. júní 2020.
Lög um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, með síðari breytingum (gjaldstofn og helmingsafsláttur).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- Við 2. mgr. bætist: en annars skal leggja til grundvallar matsverð sem miðast við byggingarstig eignar við afhendingu.
- Á eftir 1. málsl. 10. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sýslumaður skal styðjast við upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands.
- Á eftir 1. málsl. 11. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ef gjaldskyld fjárhæð endurspeglar ekki matsverð í samræmi við byggingarstig eignar við afhendingu skal sýslumaður ákvarða um gjaldskylda fjárhæð á grundvelli matsverðs sem miðast við byggingarstig eignar við afhendingu. Sýslumaður skal við ákvörðun sína styðjast við upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- 4. mgr. orðast svo:
- Á eftir orðinu „íbúðarhúsnæði“ í 6. mgr. kemur: sbr. 4. mgr.
- Við a- og b-lið 7. mgr. bætist: sbr. 4. mgr.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 9. júní 2020.