Ferill 746. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1726  —  746. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni ríkislögmanns.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir ríkislögmaður?
    Um lögbundin verkefni ríkislögmanns er kveðið á um í lögum um ríkislögmann, nr. 51/1985.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna ríkislögmanns og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til ríkislögmanns samkvæmt fylgiriti fjárlaga fyrir árið 2020 er 200,9 millj. kr. vegna ársins 2020 og er nýtt til að sinna lögbundnum verkefnum embættisins. Kostnaði er ekki deilt niður á hvert lögbundið verkefni í fjárlögum heldur er gerð grein fyrir skiptingu fjárheimilda málefnasviða og málaflokka í fjárlögum niður á stofnanir og sérstök verkefni í fylgiriti fjárlaga. Embætti ríkislögmanns heyrir undir málefnasvið 09 Almanna- og réttaröryggi og málaflokk 09.30 Ákæruvald og réttarvarsla.