Ferill 736. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1762  —  736. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu.


     1.      Hve margir einstaklingar með skerta starfsgetu, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, starfa í fjármála- og efnahagsráðuneytinu?
    Enginn starfsmaður með skerta starfsgetu starfar í ráðuneytinu um þessar mundir.

     2.      Hefur stefna verið mótuð fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu?
    Ekki hefur verið mótuð sérgreind stefna fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu. Í mannauðsstefnu Stjórnarráðsins kemur fram að allt starfsfólk á að eiga sömu möguleika á að geta nýtt hæfileika sína í starfi og skal ekki að sæta mismunun af nokkrum toga. Þetta tekur m.a. til starfsfólks með skerta starfsgetu.