Ferill 954. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1812 — 954. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu.
Frá Oddnýju G. Harðardóttur.
1. Hve margir einstaklingar með skerta starfsgetu, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, starfa í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu?
2. Hefur stefna verið mótuð fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu?
Skriflegt svar óskast.