Ferill 750. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1841 — 750. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni ráðuneytisins.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir ráðuneytið?
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með stjórnarmálefni sem tilgreind eru í 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 119/2018.
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna ráðuneytisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal sýna skiptingu fjárheimilda eftir málefnasviðum og málaflokkum í fjárlögum og er kostnaði því deilt niður með þeim hætti í fjárlögum fremur en á hvert lögbundið verkefni. Starfsemi fjármála- og efnahagsráðuneytisins fellur undir málaflokk 5.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála og samkvæmt fylgiriti fjárlaga fyrir árið 2020 er fjárveiting til ráðuneytisins 1.427,8 millj. kr.