Ferill 753. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1844  —  753. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Ríkiskaupa.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna Ríkiskaup?
    Ríkiskaup starfa samkvæmt lögum nr. 120/2016, um opinber innkaup, þar sem kveðið er á um hlutverk og verkefni stofnunarinnar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Ríkiskaupa og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal sýna skiptingu fjárheimilda eftir málefnasviðum og málaflokkum í fjárlögum og er kostnaði því deilt niður með þeim hætti í fjárlögum fremur en á hvert lögbundið verkefni. Starfsemi Ríkiskaupa fellur undir málaflokk 5.30 Fjármálaumsýsla ríkisins og samkvæmt fylgiriti með fjárlögum fyrir árið 2020 er fjárveiting til stofnunarinnar 1.917,7 millj. kr. Þar af eru um 127 millj. kr. fjármagnaðar með beinu framlagi úr ríkissjóði en eftirstöðvarnar með rekstrartekjum hennar.