Ferill 754. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1845  —  754. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Ríkiseigna.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna Ríkiseignir?
    Hlutverk Ríkiseigna leiðir af 43. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. fer ráðherra með eignarhlut ríkisins í fasteignum, jörðum, fasteignatengdum réttindum, auðlindum og öðrum réttindum ríkisaðila í A-hluta og sér um fyrirsvar þeirra, öflun og ráðstöfun, nema lög eða stjórnvaldsfyrirmæli kveði á um annað. Í 3. mgr. 43. gr. kemur fram að ráðherra sé heimilt að færa daglega umsýslu eigna skv. 1. mgr. til sérstakrar starfseiningar eða ríkisaðila sem starfar á hans ábyrgð. Ríkiseignum var komið á fót á grundvelli þessarar heimildar.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Ríkiseigna og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, skal sýna skiptingu fjárheimilda eftir málefnasviðum og málaflokkum í fjárlögum og er kostnaði því deilt niður með þeim hætti í fjárlögum fremur en á hvert lögbundið verkefni. Starfsemi Ríkiseigna fellur undir málaflokk 5.20 Eignaumsýsla ríkisins og samkvæmt fylgiriti fjárlaga fyrir árið 2020 er heildarfjárveiting til stofnunarinnar 11.791,8 millj. kr. sem fjármögnuð er með rekstrartekjum hennar.