Ferill 892. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1904  —  892. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni héraðssaksóknara og ríkissaksóknara.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinna embætti héraðssaksóknara og ríkissaksóknara?
    Um lögbundin verkefni embættis héraðssaksóknara og ríkissaksóknara segir í lögreglulögum, nr. 90/1996, og lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna embættis héraðssaksóknara og ríkissaksóknara og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveitingar til héraðssaksóknara og ríkissaksóknara samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020 eru 1399,6 millj. kr. Hvorki er í lögum um opinber fjármál, gildandi fjárlögum frá Alþingi né bókhaldi stofnana gert ráð fyrir að fjárreiður þeirra séu sundurgreindar eftir einstökum lögbundnum verkefnum.