Ferill 907. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1990  —  907. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni ráðuneytisins.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir ráðuneytið?
    Samkvæmt 9. gr. forsetaúrskurðar nr. 119/2018 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands fer umhverfis- og auðlindaráðuneytið með mál er varða:
     1.      Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
     2.      Náttúruvernd, þar á meðal:
                  a.      Líffræðilega fjölbreytni, svo sem verndun vistkerfa, búsvæða, tegunda og erfðaefnis, þ.m.t. í hafi.
                  b.      Vernd jarðmyndana.
                  c.      Verndarsvæði í hafi til varðveislu náttúruminja eða sérstakra vistkerfa á hafsbotni til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið fer með framkvæmd á.
                  d.      Friðlýst svæði, þ.m.t. málefni Þingvallaþjóðgarðs, Vatnajökulsþjóðgarðs og annarra þjóðgarða.
                  e.      Svæði sem njóta verndar samkvæmt sérlögum vegna náttúru eða landslags, þ.m.t. málefni Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.
                  f.      Sinubrennur og meðferð elds á víðavangi.
                  g.      Úrbætur og uppbyggingu á aðstöðu til móttöku ferðamanna í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum.
                  h.      Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
     3.      Skógrækt og landgræðslu, þar á meðal:
                  a.      Gróður- og jarðvegsvernd, þ.m.t. meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.
                  b.      Skóga og skógrækt.
                  c.      Endurheimt vistkerfa, þ.m.t. votlendis.
                  d.      Landgræðsluna.
                  e.      Skógræktina.
     4.      Eftirlit með timbri og timburvöru.
     5.      Rannsóknir og skráningu upplýsinga um náttúru landsins, hafsins og hafsbotnsins, þar á meðal:
                  a.      Umhverfisrannsóknir og umhverfisvöktun.
                  b.      Rannsóknir á jarðrænum auðlindum á landi og á hafsbotni öðrum en olíu og ráðgjöf um nýtingu þeirra.
                  c.      Íslenskar orkurannsóknir.
     6.      Söfnun upplýsinga um umhverfis- og auðlindamál og sjálfbærni á norðurslóðum, þ.m.t. málefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.
     7.      Stjórn vatnamála og ráðgjöf um nýtingu vatns.
     8.      Mengunarvarnir, þar á meðal:
                  a.      Hljóðvist.
                  b.      Mengun hafs og stranda, vatns og jarðvegs.
                  c.      Meðhöndlun úrgangs og úrvinnslugjald, þ.m.t. málefni Úrvinnslusjóðs.
                  d.      Fráveitur.
                  e.      Loftgæði.
     9.      Umhverfisábyrgð.
     10.      Loftslagsvernd, þar á meðal:
                  a.      Losun gróðurhúsalofttegunda.
                  b.      Viðskipti með losunarheimildir.
                  c.      Skráningarkerfi gróðurhúsalofttegunda og losunarheimilda.
                  d.      Loftslagsmál.
     11.      Hollustuhætti.
     12.      Efni og efnavörur.
     13.      Skipulagsmál, þar á meðal:
                  a.      Landsskipulagsstefnu.
                  b.      Skipulag haf- og strandsvæða.
                  c.      Skipulagsstofnun.
     14.      Sjálfbæra þróun, þar á meðal:
                  a.      Stefnumörkun um sjálfbæra þróun og ráðgjöf um nýtingu auðlinda.
                  b.      Viðmið um sjálfbæra nýtingu auðlinda.
     15.      Mat á umhverfisáhrifum áætlana og framkvæmda.
     16.      Upplýsingarétt um umhverfismál.
     17.      Landupplýsingar og grunnkortagerð, þ.m.t. málefni Landmælinga Íslands.
     18.      Veður og náttúruvá, þar á meðal:
                  a.      Veðurþjónustu.
                  b.      Vöktun á náttúruvá.
                  c.      Varnir gegn ofanflóðum.
                  d.      Rannsóknir og vöktun á vatnafari landsins.
                  e.      Rannsókn á orsökum ofanflóðs og afleiðingum þess ef manntjón hlýst af.
                  f.      Veðurstofu Íslands.
     19.      Veiðistjórnun og alþjóðaverslun með villt dýr og plöntur, þar á meðal:
                  a.      Stjórnun veiða villtra fugla og villtra spendýra, annarra en sjávarspendýra.
                  b.      Vernd og friðun villtra dýra og villtra fugla.
                  c.      Alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu.
     20.      Erfðabreyttar lífverur.
     21.      Framkvæmd alþjóðasamninga um umhverfismál.
     22.      Áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
     23.      Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
     24.      Umhverfisstofnun.
     25.      Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna ráðuneytisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárheimild aðalskrifstofu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins samkvæmt fylgiriti með fjárlögum fyrir árið 2020 er 751,6 millj. kr. Fjárheimildin er ætluð til að sinna verkefnum ráðuneytisins en fjárheimildir stofnana eru ekki sundurliðaðar sérstaklega eftir lögbundnum verkefnum í fjárlögum.