Ferill 908. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1992  —  908. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Veðurstofu Íslands.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Veðurstofa Íslands?
    Veðurstofa Íslands starfar samkvæmt lögum nr. 70/2008, um Veðurstofu Íslands, og eru lögbundin verkefni stofnunarinnar eftirfarandi:
     1.      að annast vöktun vegna náttúruvár og gefa út viðvaranir og spár um yfirvofandi hættu af völdum veðurs og veðurtengdra þátta, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða;
     2.      að sjá um rekstur veðurfræðilegra grunnkerfa og annast veðurþjónustu, sbr. lög um veðurþjónustu;
     3.      að annast almennar kerfisbundnar vatnamælingar í ám, stöðuvötnum, lónum, strandlónum, strandsjó og grunnvatni, þ.m.t. mælingar á rennsli, vatnshæð, vatnshita, aurburði og öðrum eðlis- og efnafræðilegum eiginleikum vatns;
     4.      að annast mælingar á snjóalögum og jöklabúskap og kortlagningu á ísalögum fallvatna og stöðuvatna;
     5.      að annast mælingar á hvers kyns jarðhræringum, jarðspennu, kvikuhreyfingum og hægum jarðskorpuhreyfingum, auk þess að safna upplýsingum um eldgos og öskufall;
     6.      að gera athuganir og mælingar á mengun í lofti, úrkomu og vatni;
     7.      að annast langtímarannsóknir á vatnsauðlindinni, eðli hennar og skilyrðum til nýtingar samkvæmt samningi við viðeigandi stjórnvöld;
     8.      að annast skráningu, varðveislu og miðlun gagna á starfssviði stofnunarinnar;
     9.      að kortleggja veðurfar landsins og fylgjast með loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á þá þætti náttúrunnar sem stofnunin á að vakta;
     10.      að kortleggja stöðuvötn og vatnsfarvegi landsins og gera vatnafars- og flóðakort;
     11.      að kortleggja jarðskjálftavirkni landsins og fylgjast með breytingum á jarðskjálftavirkni;
     12.      að sinna verkefnum á sviði ofanflóðavarna, sbr. lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum;
     13.      að vinna hættumat vegna náttúruhamfara að beiðni almannavarnayfirvalda eða annarra stjórnvalda;
     14.      að vinna að rannsóknum á starfssviðum stofnunarinnar er hafi það að höfuðmarkmiði að auka þekkingu á ýmsum eðlisþáttum lofts, láðs og lagar, auka þekkingu á vatnafari, veðurfari og jarðskjálftavirkni landsins, bæta þjónustuna og auka hæfni stofnunarinnar til að láta í té upplýsingar í þágu atvinnulífs, öryggismála, sjálfbærrar nýtingar auðlinda og annarra þarfa landsmanna;
     15.      að annast samskipti við Alþjóðaveðurfræðistofnunina og önnur milliríkjasamskipti innan verkahrings stofnunarinnar;
     16.      að vera ráðuneytinu og öðrum stjórnvöldum til ráðgjafar um málefni á verksviði stofnunarinnar;
     17.      önnur verkefni sem ráðherra felur stofnuninni sérstaklega.
    Í samræmi við hlutverk Veðurstofunnar samkvæmt lögum um stofnunina er nánar fjallað um hlutverk hennar í ýmsum sérlögum, t.d. lögum nr. 70/2012, um loftslagsmál, lögum 36/2011, um stjórn vatnamála, lögum nr. 88/2018, um skipulag haf- og strandsvæða, og lögum nr. 132/1999, um vitamál. Nánari upplýsingar um hlutverk Veðurstofunnar er einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar, www.vedur.is.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Veðurstofu Íslands og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárheimild Veðurstofu Íslands samkvæmt fylgiriti fjárlaga 2020 er 2.581,6 millj. kr. og er ætlað til að sinna verkefnum stofnunarinnar en fjárheimildir stofnana eru ekki sundurliðaðar sérstaklega eftir lögbundnum verkefnum í fjárlögum.