Ferill 946. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2014  —  946. mál.




Svar


utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra við fyrirspurn frá Oddnýju G. Harðardóttur um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu.


     1.      Hve margir einstaklingar með skerta starfsgetu, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, starfa í utanríkisráðuneytinu?
    Í ráðuneytinu starfar einn einstaklingur með skerta starfsgetu í 50% starfi.

     2.      Hefur stefna verið mótuð fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu?
    Einn starfsmaður með skerta starfsgetu starfar í ráðuneytinu um þessar mundir. Ekki hefur verið mótuð sérstök stefna ráðuneytisins um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu, en í mannauðsstefnu Stjórnarráðsins, sem gildir fyrir utanríkisráðuneytið, kemur fram að allt starfsfólk skuli eiga sömu möguleika á að nýta hæfileika sína í starfi og skuli ekki sæta mismunun af nokkrum toga.

    Ein vinnustund fór í að taka þetta svar saman.