Ferill 979. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2044 — 979. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um rannsóknir á loðnu.
Frá Ingu Sæland.
1. Hversu miklum fjármunum varði Hafrannsóknastofnun árlega til loðnurannsókna á árunum 2015–2020?
2. Hvaða verkefni sem lúta að rannsóknum á loðnu hafa verið unnin á þessu árabili og hve miklir fjármunir voru veittir í hvert verkefni?
3. Hversu margar ritrýndar greinar um loðnu eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hafa birst í alþjóðlegum vísindaritum á framangreindu árabili, hver er titill greinanna og hvar birtust þær?
Skriflegt svar óskast.