Ferill 986. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2051  —  986. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um rannsóknir á hrognkelsum.

Frá Ingu Sæland.


     1.      Hversu miklum fjármunum varði Hafrannsóknastofnun árlega til hrognkelsarannsókna á árunum 2015–2020?
     2.      Hvaða verkefni sem lúta að rannsóknum á hrognkelsum hafa verið unnin á þessu árabili og hve miklir fjármunir voru veittir í hvert verkefni?
     3.      Hversu margar ritrýndar greinar um hrognkelsi eftir sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar hafa birst í alþjóðlegum vísindaritum á framangreindu árabili, hver er titill greinanna og hvar birtust þær?


Skriflegt svar óskast.