Ferill 990. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2055  —  990. mál.




Fyrirspurn


til forseta Alþingis um samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hversu oft hefur samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar fundað frá og með alþingiskosningum 2013?
     2.      Hvaða vandamál og verkefni kirkjunnar hefur nefndin helst fjallað um á því tímabili?
     3.      Hvaða ályktanir og tillögur hefur nefndin sent frá sér á sama tímabili? Þess er óskað að fram komi efni hverrar ályktunar og tillögu, sem og hvort henni hafi verið beint til Alþingis eða einstakra nefnda þess eða kirkjuþings.


Skriflegt svar óskast.