Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 2128 — 680. mál.
Svar
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um aðgerðaáætlun byggðaáætlunar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hefur ráðuneytið skilgreint hvaða störf sé hægt að vinna utan ráðuneytisins í samræmi við aðgerðaáætlun byggðaáætlunar? Ef já, hver eru þau störf?
2. Hve mörg störf er nú þegar búið að ráða í utan höfuðborgarsvæðisins í samræmi við aðgerðaáætlun byggðaáætlunar?
3. Hefur ráðuneytið mótað sér áætlun til að uppfylla kröfu byggðaáætlunar um að 5% auglýstra starfa skuli vera án staðsetningar fyrir árslok 2021 og 10% fyrir árslok 2024?
Í samræmi við aðgerðaáætlun byggðaáætlunar tekur ráðuneytið þátt í vinnu við að skilgreina störf sem hægt er að sinna án sérstakrar staðsetningar með það að markmiði að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki. Vinnan er leidd af verkefnahópi með fulltrúum allra ráðuneyta um sameiginlega framkvæmd verkefnisins en framkvæmd þess er á ábyrgð fulltrúa forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Þessari vinnu er ekki lokið. Aðalskrifstofa ráðuneytisins hefur ekki ráðið í störf utan höfuðborgarsvæðisins. Ráðuneytið vinnur að áætlun um að fjölga störfum á vegum aðalskrifstofu þess á landsbyggðinni.