Ferill 227. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 229  —  227. mál.




Beiðni um skýrslu


frá mennta- og menningarmálaráðherra um útfærslur framhaldsskólanna á námi á tímum kórónuveirufaraldursins.

Frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, Ágústi Ólafi Ágústssyni, Guðmundi Andra Thorssyni, Guðjóni S. Brjánssyni, Helgu Völu Helgadóttur, Loga Einarssyni, Oddnýju G. Harðardóttur, Andrési Inga Jónssyni, Birni Leví Gunnarssyni, Jóni Þór Ólafssyni, Smára McCarthy, Halldóru Mogensen, Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, Hönnu Katrínu Friðriksson, Jóni Steindóri Valdimarssyni og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að mennta- og menningarmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um útfærslur framhaldsskólanna á námi á tímum kórónuveirufaraldursins.
    Óskað er eftir því að eftirfarandi atriði komi fram:
     1.      Hvaða aðgerðir hafa tekist vel hingað til og hverjar hafa verið helstu áskoranir?
     2.      Hvaða ófyrirséðu atvik hafa komið fram hingað til?
     3.      Lögðu skólastjórnendur fram ramma og leiðarvísi fyrir kennara um fjarkennslu á vorönn 2020?
     4.      Liðu einhverjar námsgreinar sérstaklega fyrir fjarkennslu í vor? Hefur verið gripið til aðgerða til að hægt verði að bæta upp námsframvindu í þeim greinum?
     5.      Hefur undirbúningstími kennara aukist við þessar aðstæður?
     6.      Til hvaða aðgerða hefur verið gripið til að auka framboð á góðum rafrænum og gagnvirkum námsgögnum? Í hvaða námsgreinum hefur það verið gert?
     7.      Hvernig var stuðningi við nemendur með sérþarfir háttað?
     8.      Var verkefnaálag nemenda endurskoðað í ljósi aðstæðna og breyttra kennsluhátta?
     9.      Skipti tækjakostur skóla máli fyrir fjarkennslu? Hafa allir kennarar aðgang að viðeigandi búnaði til að sinna fjarkennslu óháð staðsetningu?
     10.      Var kennurum boðin fræðsla í tækni- og menntunarfræðum í tengslum við fjarkennslu? Er í ráði að bjóða slíka fræðslu fyrir kennara? Er til skoðunar að efla þennan þátt í grunnnámi í kennslufræði?
     11.      Hvernig er stuðningi háttað við þá nemendur sem hafa ekki aðstöðu til að taka þátt í fjarkennslu eða hafa ekki aðgang að viðeigandi tækjabúnaði? Hversu stór hópur hefur þurft á slíkum stuðningi að halda?
     12.      Hvert var hlutfallslegt brotthvarf á vorönn miðað við fjölda skráðra nemenda 1. mars 2020 í hverjum skóla borið saman við árið á undan?
     13.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við ef brotthvarf nemenda eykst og hvaða leiðir telur hann færar til að taka aftur á móti þeim nemendum í skólana á næstu árum?
     14.      Skólunum er í sjálfsvald sett hvort þeir borga álag vegna kórónuveirufaraldursins og eru bónusgreiðslur til kennara því mismunandi eftir því í hvaða skóla þeir kenna. Hyggst ráðherra veita aukið fé til skólanna til að bæta fyrir þetta álag?
     15.      Hversu margir námssamningar nema í iðngreinum hafa verið staðfestir frá 1. mars 2020 borið saman við næstu fimm ár á undan? Hversu mörgum námssamningum hefur verið sagt upp frá upphafi kórónuveirufaraldursins?
     16.      Hversu margir framhaldsskólar hafa tekið upp grímuskyldu og hefur hún haft áhrif á námið?
     17.      Hvernig er félagslífi háttað í framhaldsskólum á tímum kórónuveirufaraldursins?
     18.      Hafa verið gerðar ráðstafanir til að auka námstækifæri fyrir atvinnulausa?

Greinargerð.

    Þessi beiðni um skýrslu var áður flutt á 150. löggjafarþingi (882. mál) og er nú endurflutt með breytingum að teknu tilliti til þróunar kórónuveirufaraldursins.
    Kórónuveirufaraldurinn hefur haft gríðarlegar afleiðingar. Til þess að hefta útbreiðslu veirunnar var samkomubann sett á 16. mars í vetur og framhaldsskólum lokað. Við það færðist nám alfarið í fjarkennslu fram til skólaslita. Önnur og þriðja bylgja faraldursins risu hér á landi síðsumars og í haust. Þrátt fyrir það voru framhaldsskólar opnaðir á ný, þó með takmörkuðu skólahaldi og eins metra fjarlægðartakmörkunum, ásamt því að fjarkennslu var haldið áfram að einhverju leyti. Í uppfærðum leiðbeiningum mennta- og menningarmálaráðuneytis frá 21. september 2020 er mælst til þess að nemendur, kennarar og annað starfsfólk framhaldsskóla og háskóla noti grímur í öllu skólastarfi. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kom fram að mat um grímunotkun í skólum utan höfuðborgarsvæðisins yrði háð aðstæðum í hverju tilfelli fyrir sig, aðstöðu hvers skóla og útbreiðslu smits í nærsamfélaginu.
    Þegar staðan versnaði í vor var það falið skólastjórnendum að skipuleggja nám þann tíma sem skólar þyrftu að vera lokaðir. Aðlögunartíminn var stuttur og þurftu bæði kennarar og nemendur að venjast nýjum námsaðferðum. Faraldurinn hafði einnig víðtæk áhrif á nám þeirra iðnnema sem annaðhvort sinntu verklegum hluta námsins eða voru á námssamningi þetta misseri.
    Ætla má að útfærslur skólanna hafi verið mismunandi þar sem engin ein samræmd leið var farin. Ljóst er að þessar aðstæður hafa reynst mörgum nemendum erfiðar og hætta er á að brottfall þeirra hafi orðið nokkurt miðað við frásagnir kennara í fjölmiðlum. Félagslíf nemenda hefur verið í algjöru lágmarki og bundið við rafræna miðla að mestu. Ætla má að nemendur sakni félagslífsins mikið og þess að geta ekki hist innan veggja skólans eins og í hefðbundnu árferði.
    Mikilvægt er að draga lærdóm af góðum árangri á þessum tíma og af þeim hindrunum sem hafa orðið á veginum. Þann lærdóm má nýta til að þróa fjölbreyttara námsframboð í framtíðinni í fjarnámi. Aukið fjarnám er í takt við þá þróun sem á sér stað í fjórðu iðnbyltingunni og opnar nýjar leiðir í námsframboði handa nemendum óháð búsetu þeirra og stöðu.