Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 265  —  245. mál.




Fyrirspurn


til utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra um viðbrögð við aðgerðum bandarískra stjórnvalda gegn meðafla sjávarspendýra.

Frá Ingu Sæland.


     1.      Hver eru viðbrögð ráðherra við reglum bandarískra stjórnvalda um vernd sjávarspendýra við veiðar (Marine Mammal Protection Act), sem taka gildi í ársbyrjun 2022, og hvaða vinna hefur farið fram innan ráðuneytisins í tengslum við þær og áhrif þeirra á útflutning sjávarafurða til Bandaríkjanna?
     2.      Hefur ráðherra eða ráðuneyti hans rætt þetta mál formlega við fulltrúa bandarískra stjórnvalda, og þá hverja og hvenær?


Skriflegt svar óskast.