Ferill 256. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 276 — 256. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um vistun fanga á Akureyri.
Frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.
1. Hversu margir eftirtalinna voru vistaðir í fangelsinu á Akureyri á árunum 2015–2019 og það sem af er árs 2020 og í hversu marga sólarhringa ár hvert:
a. gæsluvarðhaldsfangar,
b. afplánunarfangar,
c. fagnar sem sátu af sér vararefsingu,
d. einstaklingar sem voru handteknir af lögreglu?
2. Hversu margir gæsluvarðhaldsfangar, afplánunarfangar og aðrir fangar, auk annarra handtekinna einstaklinga, voru á tímabilinu fluttir frá Akureyri til vistunar í öðrum fangelsum landsins og í hvaða fangelsi voru þeir fluttir?
Skriflegt svar óskast.