Ferill 283. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 316 — 283. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um upplýsingafulltrúa og samskiptastjóra.
Frá Þorsteini Sæmundssyni.
1. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi í ráðuneytinu? Ef svo er, hver er árlegur heildarkostnaður síðustu tíu ár vegna starfa viðkomandi, sundurliðað í laun og annan kostnað?
2. Eru upplýsingafulltrúar eða samskiptastjórar starfandi hjá undirstofnunum ráðuneytisins? Ef svo er, hver er árlegur heildarkostnaður hverrar stofnunar síðustu tíu ár vegna starfa viðkomandi, sundurliðað í laun og annan kostnað?
Skriflegt svar óskast.