Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 534  —  1. mál.
2. umræða.



Breytingartillaga


við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2021.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar (WÞÞ, HarB, BjG, SÞÁ, PállM).


    Við 6. gr. Liður 7.22 orðist svo: Að veita lánastofnunum ábyrgð ríkissjóðs á höfuðstól lána, að meðtöldum vöxtum, til að styðja við einstaklinga og lögaðila sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og hafa orðið fyrir tímabundnum skakkaföllum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Heimildin verður nýtt í samræmi við skilyrði sem kveðið er á um í lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Jafnframt er heimilt að semja við Seðlabanka Íslands um að annast umsýslu vegna ábyrgðar ríkissjóðs á lánum.