Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 767 — 448. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um áminningar og missi löggildingar eða starfsleyfis á sviði skipulags- og byggingarmála.
Frá Ólafi Ísleifssyni.
Hversu mörgum hönnuðum, byggingarstjórum eða iðnmeisturum hefur verið veitt áminning eða þeir verið sviptir starfsleyfi eða löggildingu vegna brota á ákvæðum laga, reglugerða eða samþykkta um skipulags- og byggingarmálefni, eða fyrir að hafa vanrækt hlutverk sitt og skyldur eða sýnt af sér ítrekaða eða alvarlega óvarkárni í starfi, sbr. 57. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki?
Skriflegt svar óskast.