Ferill 541. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 906 — 541. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um vernd menningararfs og tjón á menningarverðmætum.
Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
1. Hvaða áhrif höfðu skriður þær sem féllu í byggð á Seyðisfirði í desember í fyrra á menningararf á svæðinu og hvaða tjón varð á menningarverðmætum?
2. Hefur mat verið lagt á kostnað við að bæta það tjón? Er markmið stjórnvalda að bæta tjónið að fullu leyti?
3. Er vernd menningararfs hluti af stefnu ríkisstjórnarinnar í ofanflóðavörnum?
Skriflegt svar óskast.