Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1026, 151. löggjafarþing 457. mál: sjúklingatrygging (tryggingavernd í klínískum lyfjarannsóknum).
Lög nr. 15 18. mars 2021.
Þingskjal 1026, 151. löggjafarþing 457. mál: sjúklingatrygging (tryggingavernd í klínískum lyfjarannsóknum).
Lög nr. 15 18. mars 2021.
Lög um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (tryggingavernd í klínískum lyfjarannsóknum).
1. gr.
Við 3. mgr. 3. gr. laganna bætist: nema þegar um er að ræða klínískar lyfjarannsóknir á mönnum, án bakhjarls, samkvæmt staðfestingu viðkomandi heilbrigðisstofnunar.2. gr.
Á eftir orðinu „sjúkdómsmeðferð“ í 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: nema þegar um er að ræða klínískar lyfjarannsóknir á mönnum, án bakhjarls, samkvæmt staðfestingu viðkomandi heilbrigðisstofnunar.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 12. mars 2021.