Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1255  —  594. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur um kostnað embættis ríkislögmanns vegna máls gegn íslenska ríkinu við Mannréttindadómstól Evrópu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver var kostnaður embættis ríkislögmanns við lögfræðiálit, málsvörn og málflutning Íslands vegna máls Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn íslenska ríkinu við Mannréttindadómstól Evrópu? Svar óskast sundurliðað annars vegar eftir kostnaði við vinnu starfsmanna embættisins í formi vinnustunda og hins vegar kostnaði við aðkeypta þjónustu embættisins vegna lögfræðiálita, undirbúnings fyrir málsvörn og málflutningsins sjálfs. Þá óskast aðkeypt ráðgjöf og sérfræðiþjónusta ráðuneytisins sjálfs sundurliðuð, þ.e. þær rúmu 36 millj. kr. sem koma fram í i-lið svars ráðherra á þskj. 925.

    Leitað var til embættis ríkislögmanns til að svara þeim hluta fyrirspurnarinnar sem lýtur að embættinu. Í svari ríkislögmanns kemur fram að ekki sé haldið sérstaklega utan um tímaskráningu vegna einstakra mála hjá embættinu. Það liggur því ekki fyrir hversu margar vinnustundir fóru í verkefnið. Hvað varðar aðkeypta þjónustu hjá embættinu vegna málsins kemur fram í svari ríkislögmanns að hún hafi eingöngu verið vegna kostnaðar við þýðingar á íslenskum dómum, nefndarálitum og öðrum gögnum. Fyrir undirrétti hafi kostnaðurinn verið 1.105.962 kr. og fyrir yfirdeild 4.153.411 kr.
    Hvað varðar sundurliðun á aðkeyptri ráðgjöf og sérfræðiþjónustu ráðuneytisins, sem getið er í svari við fyrirspurn á þskj. 925, þá var sá kostnaður samtals að fjárhæð 36.085.584 kr. Þar af var lögmannsstofunni Blackstone greiddar 31.557.071 kr. og lögmannsstofunni Advokatfirmaet Schjodt AS greiddar 4.528.513 kr.