Ferill 745. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1260 — 745. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um rétt til atvinnuleysisbóta.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
Eiga þeir sem hafa náð 70 ára aldri, eru í 100% starfshlutfalli og greiða iðgjald til atvinnuleysistryggingasjóðs, rétt á atvinnuleysisbótum missi þeir vinnuna? Ef ekki, á hvaða lagagrundvelli er slík synjun byggð?
Skriflegt svar óskast.