Ferill 679. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1285  —  679. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lagalega ráðgjöf.


     1.      Hvaða viðmið eru viðhöfð þegar ráðuneytið leitar eftir ráðgjöf til stofnana eða starfsmanna, þ.m.t. félaga í eigu starfsmanna, lagadeilda Háskólans á Akureyri (HA), Háskóla Íslands (HÍ), Háskólans í Reykjavík (HR) og Háskólans á Bifröst (Bifröst) sem gegna stöðu nýdoktora, háskólakennara, lektora, dósenta eða prófessora í fullu starfi og hlutastarfi, þ.m.t. starfsmenn í gesta- og rannsóknarstöðum?
    Sjaldgæft er að ráðuneytið leiti eftir slíkri lagalegri ráðgjöf og eru engin tiltekin viðmið til varðandi slíka ráðgjöf.

     2.      Vegna hvers konar verkefna er leitað lagalegrar ráðgjafar hjá starfsmönnum og stofnunum lagadeilda háskólanna og hversu oft vegna hverrar tegundar verkefna?
    Beiðni um lagalega ráðgjöf getur t.d. tengst frumvarpa- eða reglugerðarvinnu og einnig alþjóðlegum skuldbindingum. Leitað er til aðila sem búa yfir sérfræðiþekkingu á viðkomandi sviði. Sjaldgæft er að leitað sé eftir slíkri ráðgjöf.

     3.      Hversu mörg ráðgjafarverkefni, sem 1. tölul. lýtur að, hafa verið innt af hendi frá árinu 2018 og hversu mikið hefur verið greitt samtals fyrir ráðgjöfina á umræddu tímabili?
     4.      Hversu mikið hefur verið greitt fyrir verkefni sem vikið er að í 1. tölul. frá ársbyrjun 2018 og hversu mörg hafa verið innt af hendi af annars vegar starfsmönnum og hins vegar stofnunum:
                  a.      lagadeildar HA,
                  b.      lagadeildar HÍ,
                  c.      lagadeildar HR,
                  d.      lagadeildar Bifrastar?
    Ráðuneytið hefur ekki leitað eftir slíkri ráðgjöf frá árinu 2018.

     5.      Hvaða bókaútgáfu á sviði lögfræði hefur ráðuneytið styrkt frá árinu 2018 og hversu hár hefur styrkurinn verið fyrir hverja og eina útgáfu? Hvaða viðmið eru lögð til grundvallar við slíkar styrkveitingar?
    Ráðuneytið hefur ekki styrkt bókaútgáfu á sviði lögfræði á þessu tímabili. Tilgangurinn með kaupum á bókum og tímaritum á sviði lögfræði er almennt sá að styrkja og styðja við lögfræðilega vinnu í ráðuneytinu en ekki styrkja bókaútgáfu eða útgáfu rita. Hið sama á við um ritgerðir sem ráðuneytið kaupir frá laganemum.