Ferill 838. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 1595 — 838. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um kostnað við ferðir ráðherra innan lands.
Frá Þorsteini Sæmundssyni.
1. Hver var kostnaður vegna ráðherrabílstjóra, þ.e. laun, launatengd gjöld og annar kostnaður, á árunum 2017–2019?
2. Hver var rekstrarkostnaður ráðherrabíls á árunum 2017–2019? Ef bílar voru fleiri en einn óskast svar sundurliðað.
3. Hver var gistikostnaður vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
4. Hverjar voru dagpeningagreiðslur vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
5. Hver var annar kostnaður vegna ferða ráðherra innan lands á árunum 2017–2019?
Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Skriflegt svar óskast.