Framkvæmd þingsályktunarinnar
Ferill 152. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 193 — 152. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (endurbótalýsing verðbréfa).
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 384/2021, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/337 frá 16. febrúar 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 að því er varðar ESB-endurbótalýsingu og markvissar aðlaganir fyrir fjármálamilliliði og tilskipun 2004/109/ EB að því er varðar notkun á sameiginlega rafræna skýrslusniðinu fyrir árleg reikningsskil, til að stuðla að endurbótum í kjölfar COVID-19-hættuástandsins.
Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Nefndin leggur til breytingu þannig að númer ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar komi fram í tillögugrein og fyrirsögn málsins. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
a. Á eftir orðunum „ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar“ í 1. málsl. tillögugreinar komi: nr. 384/2021.
b. Fyrirsögnin orðist svo: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 384/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (endurbótalýsing verðbréfa).
Þorgerður K. Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta í samræmi við 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 14. desember 2021.
Bjarni Jónsson, form. |
Njáll Trausti Friðbertsson, frsm. |
Birgir Þórarinsson. | |
Diljá Mist Einarsdóttir. | Logi Einarsson. | Jakob Frímann Magnússon. | |
Jóhann Friðrik Friðriksson. | Þorgerður K. Gunnarsdóttir. |