Ferill 266. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 373 — 266. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráð.
Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.
1. Hve oft fundaði sóttvarnaráð á tímabilinu 1. janúar 2020 til 25. janúar 2022?
2. Hefur sóttvarnaráð mótað stefnu í sóttvörnum vegna COVID-19-sjúkdómsins, sbr. 3. mgr. 6. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997?
3. Hvernig var samráði háttað við sóttvarnaráð þegar teknar voru ákvarðanir um sóttvarnatakmarkanir á tímabilinu 1. janúar 2020 til 25. janúar 2022?
Skriflegt svar óskast.