Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 404  —  290. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um biðtíma eftir kynleiðréttingaraðgerðum.

Frá Evu Dögg Davíðsdóttur.


     1.      Hver er meðalbiðtími eftir kynleiðréttingaraðgerð? Svar óskast sundurliðað eftir árum síðustu fimm ár.
     2.      Hversu langir eru biðlistar eftir kynleiðréttingaraðgerðum?
     3.      Hverjar eru helstu ástæður fyrir skorti á gagnsæi og löngum biðtíma eftir kynleiðréttingaraðgerðum fyrir sjúklinga?
     4.      Stendur til að breyta forgangsröðun kynleiðréttingaraðgerða, þar sem ljóst er að þær eru lífsnauðsynlegar þeim sem þær þurfa?


Skriflegt svar óskast.