Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 546  —  384. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um aðkomu einkaaðila að fangelsismálum og útlendingamálum.

Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir aðkomu einkaaðila að fangavörslu eða annarri grunnstarfsemi fangelsa, svo sem með því að bjóða út ákveðin verkefni og gera þjónustusamninga við einkafyrirtæki? Ef svo er, hvenær og með hvaða hætti?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir aðkomu einkaaðila að framkvæmd ákvarðana Útlendingastofnunar og fylgd umsækjenda um alþjóðlega vernd úr landi eftir synjun umsóknar um slíka vernd? Ef svo er, hvenær og með hvaða hætti?
     3.      Hefur ráðherra hafið vinnu í ráðuneytinu við þær breytingar í fangelsismálum og útlendingamálum sem að framan greinir, svo sem með greiningu á kostum og göllum útvistunar og aukins einkareksturs í þessum málaflokkum?


Skriflegt svar óskast.