Ferill 392. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 561 — 392. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um brotthvarf háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hver var fjöldi og hlutfall háskólamenntaðra sérfræðinga sem hurfu af almennum vinnumarkaði á opinberan vinnumarkað árin 2010–2021?
2. Hyggst ráðherra sporna við brotthvarfi háskólamenntaðra sérfræðinga af almennum vinnumarkaði á opinberan vinnumarkað? Ef svo er, hvernig?
3. Hyggst ráðherra útvista verkefnum háskólamenntaðra sérfræðinga hins opinbera í auknum mæli og kaupa oftar þjónustu einkaaðila fremur en fjölga háskólamenntuðum ríkisstarfsmönnum? Ef svo er, hvernig?