Ferill 113. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 572  —  113. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um búningsaðstöðu og salerni.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað líður vinnu við endurskoðun á lögum, reglugerðum og reglum í tengslum við búningsaðstöðu og salerni, með tilliti til laga um kynrænt sjálfræði, sem boðuð var í svari við fyrirspurn á 150. löggjafarþingi (þskj. 1430, 730. mál)?

    Markmið laga nr. 80/2019, um kynrænt sjálfræði, er m.a. að tryggja að kynvitund einstaklinga njóti viðurkenningar, að standa vörð um rétt einstaklinga til sjálfræðis um eigin líkama og að borin sé virðing fyrir rétti þeirra til lífs, öryggis, frelsis og mannlegrar reisnar. Í lögunum er kveðið á um að einstaklingur sem hefur breytt opinberri skráningu kyns njóti allra þeirra réttinda að lögum sem skráð kyn ber með sér.
    Í lögum sem heyra undir ráðuneytið er hvorki að finna sérstaka umfjöllun um búningsaðstöðu og salerni né gera ákvæði laganna ráð fyrir aðgreiningu kynja og því er ekki tilefni til að gera breytingar á þeim. Ákvæði sem fjalla um búningsaðstöðu og salerni er að finna í reglugerð nr. 941/2002, um hollustuhætti, og reglugerð nr. 814/2010, um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Þörf er á breytingum á þeim reglugerðum í tilefni af framangreindum lögum um kynrænt sjálfræði. Ákvæði áðurgreindra reglugerða þurfa að tryggja réttindi fólks óháð kyntjáningu þess. Unnið hefur verið að heildarendurskoðun hollustuháttareglugerðar í samvinnu og samráði við hlutaðeigandi stofnanir og stjórnvöld. Drög að nýrri hollustuháttareglugerð hafa verið í kynningu í samráðsgátt stjórnvalda síðan í janúar 2022, sjá mál nr. 2/2022.
    Meginreglan er að salerni eru ekki kyngreind en velji rekstraraðilar það er í gildandi reglugerð um hollustuhætti einungis gert ráð fyrir skiptingu í kvenna- og karlasalerni. Við heildarendurskoðun hollustuháttareglugerðar hefur verið litið til breytinga á henni með markmið laga um kynrænt sjálfræði að leiðarljósi. Í drögum að nýrri reglugerð er miðað við að meginreglan verði áfram sú að salerni verði ekki kyngreind en sé það gert verði rekstraraðilum skylt að bjóða upp á einstaklingssalerni fyrir önnur kyn. Í framhaldi af setningu nýrrar reglugerðar um hollustuhætti stefnir ráðuneytið á að undirbúa og kynna sambærilegar breytingar á reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum að því er varðar einstaklingsbúningsklefa og sturtuaðstöðu.