Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 653 — 454. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um viðurkenningu á heilbrigðismenntun sem aflað hefur verið í öðru landi.
Frá Helgu Völu Helgadóttur.
1. Mun mennta- og barnamálaráðuneytið, sem fer með málefni framhalds- og grunnskóla, halda áfram að annast mat á því hvort einstaklingur uppfylli skilyrði til að starfa í starfsgreinum í heilbrigðiskerfinu hér á landi, sem til þarf leyfi, löggildingu eða aðra jafngilda viðurkenningu, á grundvelli faglegrar menntunar og hæfis sem hann hefur aflað sér í öðru landi, sbr. 2. gr. laga nr. 26/2010? Mun hafa áhrif á ákvörðunina að hluti menntunar heilbrigðisstarfa fer fram í háskólum landsins og hluti í framhaldsskólum?
2. Hversu langan tíma tekur mat á því hvort einstaklingur uppfylli skilyrði til að starfa í starfsgreinum í heilbrigðiskerfinu hér á landi, sem til þarf leyfi, löggildingu eða aðra jafngilda viðurkenningu, á grundvelli faglegrar menntunar og hæfis sem hann hefur aflað sér í öðru landi, sbr. 2. gr. laga nr. 26/2010?
3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að viðurkenning á heilbrigðismenntun einstaklinga frá öðru ríki taki skemmri tíma en nú til þess að draga úr mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu hér á landi?
Skriflegt svar óskast.