Ferill 469. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 676  —  469. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um húsnæði fyrir lögreglumenn í dreifðum byggðum.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ríkissjóður kaupi húsnæði fyrir lögreglumenn í Langanesbyggð svo að tryggja megi löggæslu á svæðinu í ljósi þess að erfitt er að fá lögreglumenn til starfa þar vegna húsnæðisskorts?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir kaupum á húsnæði fyrir lögreglumenn víðar í dreifðum byggðum svo að auðveldara verði að manna stöður?


Skriflegt svar óskast.