Ferill 520. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 747 — 520. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um njósnaauglýsingar.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hvaða persónuverndarreglur gilda um netauglýsingar sem byggjast á persónusniði og eftirliti með notendum, svonefndar njósnaauglýsingar?
2. Hyggst ráðherra tryggja betur réttindi einstaklinga með tilliti til þessara svonefndu njósnaauglýsinga?
Skriflegt svar óskast.