Ferill 609. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 852  —  609. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um landshlutasamtök og umhverfismál.

Frá Hildu Jönu Gísladóttur.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að fjármagn verði veitt í sóknaráætlanir landshlutanna í tengslum við umhverfis- og loftslagsmál?
     2.      Mun ráðherra stuðla að markvissu samstarfi landshlutasamtaka og ríkisins vegna umhverfis- og loftslagsmála? Ef svo er, hvernig?


Skriflegt svar óskast.