Ferill 689. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1032  —  689. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um lögræðissvipta.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


     1.      Hversu mörg þeirra sem hafa verið svipt lögræði undanfarin tíu ár hafa á þeim tíma verið í þvingaðri lyfjagjöf?
     2.      Hver er dvalartími lögræðissviptra á lokuðum geðdeildum? Svar óskast um meðaldvalartíma, stysta dvalartíma og lengsta dvalartíma undanfarin tíu ár.
     3.      Hversu mörg ótímabær dauðsföll hafa verið meðal lögræðissviptra undanfarin tíu ár?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Vísað er til svars dómsmálaráðherra við fyrirspurn um lögræðissvipta (þskj. 979, 479. mál) þar sem fjallað var um hversu mörg hefðu verið svipt lögræði á Íslandi undanfarin tíu ár og hverjar ástæðurnar fyrir lögræðissviptingu þeirra voru.