Ferill 708. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1070  —  708. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um vetrarþjónustu samkvæmt reglu um helmingamokstur.

Frá Helga Héðinssyni.


     1.      Hver er lengd vega þar sem vetrarþjónustu er sinnt samkvæmt reglu um helmingamokstur?
     2.      Hver hefur verið kostnaður ríkisins af snjómokstri á þessum vegum árlega síðustu fimm árin?
    Svar óskast sundurliðað eftir þjónustusvæðum Vegagerðarinnar og sveitarfélögum.


Skriflegt svar óskast.