Ferill 662. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1130  —  662. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um sjávarspendýr.

     1.      Hvenær má vænta þess að ráðherra leggi fram frumvarp til laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, í samræmi við markmið stjórnarsáttmála um að ljúka heildarendurskoðun laganna?
    Ráðuneytið er með til skoðunar hvaða breytingar eigi að gera á frumvarpi því er var lagt fram á Alþingi vorið 2021 áður en það verður lagt fram að nýju. Sú vinna miðar m.a. að því að ná betri sátt um málið áður en það verður lagt fram á Alþingi. Ekki liggur fyrir nákvæmari tímasetning um lok þeirrar vinnu.

     2.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að málefni sjávarspendýra verði færð undir lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, í samræmi við það sem fram kom í munnlegu svari matvælaráðherra við fyrirspurn á þskj. 321 á yfirstandandi löggjafarþingi um að hún telji að málefni sjávarspendýra ættu almennt að heyra undir þau lög?

    Í skýrslu nefndar um lagalega stöðu villtra fugla og spendýra frá 3. apríl 2013 kemur fram sú tillaga nefndarinnar að málefni sjávarspendýra falli undir lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Ekki hefur farið fram frekara samtal á milli ráðuneyta um flutning málefna sjávarspendýra frá matvælaráðuneytinu yfir til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.