Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1137, 152. löggjafarþing 318. mál: almenn hegningarlög (erlend mútubrot).
Lög nr. 30 9. júní 2022.
Þingskjal 1137, 152. löggjafarþing 318. mál: almenn hegningarlög (erlend mútubrot).
Lög nr. 30 9. júní 2022.
Lög um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (erlend mútubrot).
1. gr.
Við 5. mgr. 81. gr. laganna bætist: nema vegna brota er varða við 109. gr. og 1. mgr. 264. gr. a þar sem fyrningarfrestur er 10 ár.2. gr.
Í stað orðanna „5 árum“ í 1. mgr. 109. gr. laganna kemur: 6 árum.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 264. gr. a laganna:- Orðin „í atvinnurekstri“ í 1. og 2. mgr. falla brott.
- Á eftir orðunum „í opinberri eigu“ í 1. og 2. mgr. kemur: eða undir stjórn hins opinbera.
- Í stað orðanna „í bága við starfsskyldur“ í 1. mgr. kemur: sem tengist starfsskyldum.
- Í stað orðanna „5 árum“ í 1. mgr. kemur: 6 árum.
- Í stað orðanna „í bága við starfsskyldur sínar“ í 2. mgr. kemur: sem tengist starfsskyldum hans.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 1. júní 2022.