Ferill 727. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1173 — 727. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um skilgreiningu auðlinda.
Frá Sigurði Páli Jónssyni.
1. Hvenær telur ráðherra að frumvarp til laga um skilgreiningu auðlinda sem samþykkt var að leggja ætti fyrir Alþingi á 150. löggjafarþingi samkvæmt ályktun Alþingis frá 20. júní 2019, nr. 43/149, verði tilbúið og lagt fyrir þingið?
2. Hvenær hóf ráðuneytið vinnu við undirbúning frumvarpsins, hvað hefur verið gert og hver er staða málsins?
Skriflegt svar óskast.