Ferill 569. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Prentað upp.

Þingskjal 1240  —  569. mál.
Leiðrétt fyrirsögn. Brottfall.

2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 (framlenging bráðabirgðaákvæða).

Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    „Tímabundin hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna kostnaðar sem fellur til við rannsóknir og þróun verður óbreytt.“ Þetta stendur skýrum stöfum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað er um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Þess vegna kom það nýsköpunarsamfélaginu á Íslandi í opna skjöldu þegar fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram frumvarp um að bráðabirgðaákvæði í lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009, yrðu framlengd um aðeins eitt ár og endurgreiðsluhlutfallið hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum lækkað. Fjöldi fyrirtækja hafði þegar gert fjárfestingar- og vaxtaráætlanir í samræmi við hlutföll núgildandi laga sem gefin voru fyrirheit um að yrðu framlengd óbreytt í stjórnarsáttmála.
    Það er fagnaðarefni að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggi til að horfið verði frá þessari skyndilegu breytingu á endurgreiðsluhlutfallinu, en 1. minni hluti brýnir fyrir ríkisstjórninni og stjórnarmeirihlutanum að sýna stefnufestu og forðast hringlandahátt í stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki. Nægur er óstöðugleikinn fyrir alþjóðageirann og hugvitsdrifnar atvinnugreinar í hinu sveiflukennda krónuhagkerfi. Það er verkefni löggjafans og stjórnvalda að vega upp á móti þeirri óvissu og þeim rekstrarlegum áskorunum sem henni fylgja með því að skapa fyrirsjáanlegt, stöðugt og samkeppnishæft laga- og skattaumhverfi. Slíkt verður ekki gert með því að sveifla hlutföllum og viðmiðunarfjárhæðum í lögum fram og til baka eftir því hvernig vindar blása.
    Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að skýra og skerpa á reglum um skattafrádrátt vegna nýsköpunar til að girða fyrir misnotkun á úrræðinu. Skatturinn hefur bent á að ýmis dæmi séu um að almennur rekstrarkostnaður sé talinn ranglega fram sem rannsóknar- og þróunarkostnaður og kallað eftir því að lögfest verði refsiviðurlög til að skapa varnaðaráhrif gegn misnotkun á úrræðinu og sporna gegn óréttmætum endurgreiðslum. Horfa þarf til slíkra lagabreytinga um leið og núgildandi endurgreiðsluhlutföll verða fest varanlega í sessi sem vonandi gerist strax á næsta löggjafarþingi.

Alþingi, 13. júní 2022.

Jóhann Páll Jóhannsson.