Ferill 10. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 10  —  10. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins.


Flm.: Bjarni Jónsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Jódís Skúladóttir, Orri Páll Jóhannsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela matvælaráðherra að efla félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með aukinni hlutdeild í heildarafla, endurskoðun á skiptingu aflamagns innan kerfisins og hlutverki hverrar aðgerðar innan þess.

Greinargerð.

    Í stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um auðlindir hafs og stranda er skýrt kveðið á um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins. Þessari tillögu til þingsályktunar er ætlað að undirstrika þá stefnu og er lagt til að stækka í áföngum félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með það fyrir augum að hlutdeild þess verði 8,3% af heildarafla í stað 5,3%. Þá er lagt til að endurskoðuð verði skipting aflamagns á milli aðgerða innan kerfisins. Sömuleiðis leggja flutningsmenn áherslu á að endurskoða hlutverk hverrar aðgerðar fyrir sig og hvort breytingar megi gera þar á.
    Félagslegar veiðar eru mikilvæg byggðaráðstöfun, þær efla atvinnu, auka fjárfestingu á sviði sjávarútvegs, ekki síst þar sem aflamarki og krókaaflamarki er ekki til að skipta, í minni og brothættari byggðum. Viðvarandi stækkun félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins til lengri tíma eykur svo um munar fyrirsjáanleika í greininni, minnkar sveiflur vegna kvótaskerðingar og styrkir stöðu félagslegra veiða innan heildarkerfisins. Þá eru ótalin áhrif félagslegra veiða, sér í lagi strandveiða, á nýliðun í sjávarútvegi og mikilvægi þeirra sem mótvægi við aukna fákeppni og samþjöppun í sjávarútvegi. Strandveiðar eru dæmi um vel heppnaða aðgerð innan kerfisins og hefur þeim vaxið ásmegin á undanförnum árum. Á nýliðnu strandveiðisumri (2022) var aflaverðmæti handfæraveiða um 4,8 milljarðar kr. Heildarþorskafli var 10.948 tonn og 1.472 tonn í ufsa. Fiskverð var í sögulegu hámarki en meðalverð á þorski var 406 kr. á kg. Langstærstur hluti þessa afla er seldur á fiskmarkað sem styður þannig við fiskvinnslu án tengsla við útgerð sem skilar hærra meðalverði enda eftirspurn eftir fiski oft með besta móti yfir sumartímann.
    Strandveiðar voru heimilaðar með lögum nr. 66/2009 um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og hófust þær þann 28. júní 2009. Við upphaf strandveiða var meðal markmiða að auka aðgengi að fiskveiðum í atvinnuskyni, opna á takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki eru handhafar aflamarks eða krókaaflamarks. Sömuleiðis voru þær liður í aukinni atvinnustarfsemi, ekki síst í smærri byggðum, byggðarlögum og á svæðum sem hafa farið illa út úr samþjöppun aflaheimilda á fáa staði og hendur. Grunnhugmyndin fólst í að setja á fót frjálsar handfæraveiðar meðfram ströndinni. Þessi nýi flokkur veiða fékk síðan heitið „strandveiðar“ og var hugsaður sem frjálsar en ábyrgar og sjálfbærar veiðar sem myndu greiða fyrir nýliðun í sjávarútvegi en jafnframt efla atvinnu og líf í sjávarbyggðum landsins. Þau markmið hafa að mörgu leyti gengið eftir og einn þýðingarmesti ávinningur strandveiðanna er sá að fleiri en þeir sem eiga kvóta geta nú stundað veiðar í atvinnuskyni, líkt og nýliðið strandveiðisumar sýndi glöggt. Strandveiðar skipta nú sköpum fyrir fjölda fjölskyldna vítt og breitt um landið og stuðla að byggðafestu. Það er því álit þeirra sem standa að þessari tillögu til þingsályktunar að mikilvægt sé að efla enn frekar strandveiðar með traustum aflaheimildum og réttlátri skiptingu aflamagns á milli aðgerða félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins, svo að þær fái best þjónað því hlutverki sínu að efla nýliðun og að samfélagsleg og hagræn áhrif veiðanna á dreifðar sjávarbyggðir landsins séu treyst.
    Þá felast tækifæri varðandi orkuskipti í strandveiðum, hér má líta til nýtingar rafknúinna veiðarfæra og minnkandi olíunotkunar sem styður við markmið um vistvænar veiðar og kolefnishlutleysi. Þau veiðarfæri sem notast er við eru vistvæn og raska ekki sjávarbotni á grunnslóð og fara vel með hráefni. Hægt er að gera enn betur og efla frekar umhverfishvata í útgerð innan félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins.
    Ástæða er til að endurskoða úthlutun og meðhöndlun aðgerða innan kerfisins með tilliti til þess hvernig þær veiðiheimildir nýtist sem best smærri byggðarlögum sem þær eiga að þjóna og færa stærri hluta þeirra til smærri útgerða og inn í strandveiðikerfið. Þá þarf að koma í veg fyrir að stór hluti þeirra endi hjá stærstu útgerðarfélögum landsins sem nú þegar halda á stærstum hluta allra veiðiheimilda við Íslandsstrendur.