Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 221 — 220. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um stefnu um afreksfólk í íþróttum.
Frá Hönnu Katrínu Friðriksson.
1. Hvað líður mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum sem Alþingi fól mennta- og menningarmálaráðherra að leggja fram fyrir 1. júní 2022, sbr. ályktun Alþingis nr. 33/151?
2. Hafa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sveitarfélög verið kölluð saman til þess að útbúa stefnuna? Ef ekki, hvenær verður það gert?
3. Hvenær gerir ráðherra ráð fyrir því að leggja stefnuna fram á Alþingi?
Skriflegt svar óskast.