Ferill 228. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 229 — 228. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um eignir og tekjur landsmanna árið 2021.
Frá Loga Einarssyni.
1. Hvert var eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2021 og hvert var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna það ár?
2. Hverjar voru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2021 og hvert var hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna það ár?
3. Hverjar voru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2021, með og án fjármagnstekna, og hvert var hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna það ár?
4. Hvað áttu tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2021 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna það ár?
Skriflegt svar óskast.