Ferill 258. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 259 — 258. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um aðgerðir til að treysta innlenda matvælaframleiðslu.
Frá Þórarni Inga Péturssyni.
Hyggst ráðherra grípa til frekari aðgerða en greiðslna á grundvelli tillagna í skýrslu spretthóps um alvarlega stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi frá því í júní 2022 til að treysta innlenda matvælaframleiðslu? Hyggst ráðherra leggja til beinan fjárstuðning eða endurskoðun á tollvernd og starfsskilyrðum landbúnaðarins?