Ferill 291. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 295  —  291. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um jöfn tækifæri til afreka.

Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.


     1.      Hvað hefur ráðuneytið gert til að tryggja jöfn tækifæri trans barna og ungmenna til að iðka íþróttir og þar með að vinna til afreka á því sviði?
     2.      Hvernig miðar vinnu við að framkvæma 8. aðgerð þingsályktunar um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025, þar sem fjallað er um hinsegin börn og ungmenni í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi?