Ferill 294. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 298  —  294. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um gjaldfrjálsar tíðavörur.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvaða sveitarfélög buðu upp á gjaldfrjálsar tíðavörur í grunnskólum og félagsmiðstöðvum við upphaf haustannar 2022?
     2.      Hvaða framhaldsskólar buðu upp á gjaldfrjálsar tíðavörur á sama tíma?


Skriflegt svar óskast.