Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 308 — 303. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um geislafræðinga.
Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.
1. Hve mörg stöðugildi geislafræðinga voru á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2016 og 2021?
2. Hversu margir geislafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
3. Hve mörg stöðugildi geislafræðinga voru á heilsugæslustöðvum eftir heilbrigðisumdæmum árin 2016 og 2021?
4. Hversu margir geislafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
5. Hefur ráðuneytið sett viðmið um mönnun geislafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
6. Hefur ráðuneytið skilgreint störf geislafræðinga í heilbrigðiskerfinu og hvort störf þeirra eða hluti starfa þeirra geti verið unninn af öðrum fagstéttum í heilbrigðiskerfinu?
7. Hvert er lágmarksviðmið um mönnun geislafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
8. Getur ráðuneytið upplýst um meðalaldur og kynjaskiptingu í stétt geislafræðinga?
9. Hversu mörg stunda nám í geislafræði til BS-gráðu (180 ECTS)?
Skriflegt svar óskast.